Sandra í lokahóp U-20 HSÍ

24.maí.2018  08:09

Stefán Arnarson og Hrafnhildur Skúladóttir þjálfarar U-20 ára landsliðs kvenna hafa valið þá 16 leikmenn sem taka þátt á HM í Ungverjalandi í sumar.  Þau völdu Söndru Erlingsdóttur frá ÍBV en Sandra var ein af burðarásum ÍBV í vetur.

 

Íslensku stelpurnar tryggðu sér sæti á HM með því að ná 2. sæti í undanriðli sem haldinn var í Vestmannaeyjum í lok mars. Þar unnu stelpurnar okkar góða sigra á Litháen og Makedóníu en töpuðu naumlega fyrir Þýskalandi.

 

Heimsmeistaramótið fer fram í Debrecan í austurhluta Ungverjalands í byrjun júlí. Stelpurnar okkar eru í riðli með Rússlandi, S-Kóreu, Slóveníu, Kína og Chile í mótinu. Fjögur efstu liðin í riðlinum komast í 16-liða úrslit.

 

ÍBV óskar Söndru innilega til hamingju með þennan árangur